New
Uppselt

Keto Brainz Nootropic Creamer|Fyrir skýra hugsun og einbeitingu

FRAMLEIÐANDI: Keto Brainz

8.990 kr

Keto Brainz Nootropic Creamer hentar frábærlega til að auka athygli og einbeitingu og hafa orku fyrir krefandi verkefni eða átök.

Keto Brainz inniheldur C8 MCT olíu, kókosrjóma duft og þrjú "nootropic" innihaldsefni fyrir heilann: Alpha GPC, L-theanine og Lion's Mane.

L-theanine: Sýnt hefur verið fram á að L-theanine geti aukið alfa bylgjur í heilanum. Alfa bylgjurnar eru ábyrgar fyrir aukinni árvekni (e. alertness) með slökum huga samt.

Lion's mane lækningarsveppurinn er talinn geta stuðlað að myndum nýrra taugabrauta og auka BDNF. BDNF stendur fyrir: Brain Derived Neurotrophic factor sem er prótein og meðlimur í taugatrópín fjölskyldu vaxtarþátta sem eru talin styðja við og auka taugaþol (neuroplasticity) og getu heilans til að endurskipuleggja tauganetið sitt með því að mynda nýjar tengingar.

Alph GPC: er talioð skilvirkasta formið af kólíni (e.choline) sem eykur sjáanlega "acetylcholine" í heilanum. Acetylcholine spilar mikilvægt hlutverk í öllum tegundum minnis myndunar. Acetylcholine er einnig hluti af árvekni, athygli og lærdómi.

C8 MCT OLÍU sem breytist hratt í ketóna orku sem gefur líkamanum orku og er talin hjálpa við matar- og sykurlanganir. C8 MCT olían er einnig talin hjálpa til við orkuskipti sem getur hjálpað við fitubrennslu.

Við notum oft kaffi sem orkuskot og til að einbeita okkur. Mest af þeirri virkni kemur úr koffíni. Með réttum innihaldsefnum geturðu stutt ennþá betur við hugann. 

Keto Brainz Nootropic creamer gerir það mjög auðvelt. Þú getur til dæmis bætt skeið við í kaffið eða kakóið þitt (eða annan drykk) og blandað vel saman (með handþeytara, töfrasprota eða í blandara). Kaffið verður sannkallað ofurkaffi við þessa viðbót.  

Varan er talin geta aukið orkuna og stutt við heilavirkni. 

Hentar vel á ketó og lágkolvetna mataræði. 

Hver poki inniheldur 30 skammta.

Nánari upplýsingar
Innihaldslýsing
Notkun
Vísindagreinar
Mikilvægar upplýsingar
Nánari upplýsingar

Innihaldslýsing

Ingredients:

Keto Brainz Nootropic Creamer: 8g C8 MCT Powder, 7g Coconut Cream Powder, 300mg Alpha GPC, Lion's Mane, 250mg L-Theanine

Notkun
Vísindagreinar
Mikilvægar upplýsingar

Upplýsingum sem eru á síðunni er ekki ætlað að koma í stað tilmæla eða ráðgjafar fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Sjúklingar á lyfjum, sérstaklega þeir sem haldnir eru alvarlegum sjúkdómum ættu að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja neyslu bætiefna.

Customer Reviews

Based on 3 reviews
100%
(3)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
T
Tinna Jónsdóttir
Fullkomið í morgunkaffið til að skerpa hugann

Ég finn mun á einbeitingunni og afköstum í vinnunni þegar ég bæti keto brainz í morgunkaffið. Fràbær vara sem ég get heilshugar mælt með!

E
Ebba Guðmundsdóttir
Set í alla sjeika

Gefur öllu rjómakennda áferð og bragð og mér líður svo vel af keto brainz. Ég set smá í alla sjeika, vil gera allt til að hafa heilann í lagi. Ekki samt heila skeið til að spara. Set kannski 1/2 ca.

B
Björgvin Páll Gústavsson
Frábær viðbót

Gefur Keto-kaffinu betra bragð, betri áferð og fullkomið að taka inn mín mikilvægustu "nootropics" í gegnum morgunbollann til þess að kickstarta deginum. Love it!

Frítt að sækja á Dropp stað

Þegar verslað er fyrir 20 þúsund krónur og meira.

Greiðslumáti.

Við tökum við debet og kredit kortum, ásamt Netgíró.

Vöruskil.

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru.

VÍSINDALEGA RANNSÖKUÐ INNIHALDSEFNI

HVAÐ ÞÝÐIR ÞAÐ?

Bætiefni og vítamín á Heilsubarnum eru sérstaklega valin inn með tilliti til þessa og er mikil áhersla lögð á að þau séu af réttri tegund sem nýtist líkamanum.

Innihaldsefnin og tegundir þeirra hafa vísindarannsóknir á bakvið sig til þess að staðfesta virkni þeirra.

Við gerum okkar besta í að benda á vísindagreinar þegar það á við.

AF HVERJU SKIPTIR ÞAÐ MÁLI?

Algengt er að þeir sem eru leitast eftir að bæta heilsuna með bætiefnum og vítamínum séu í þörf fyrir það og heilsan ekki í topp standi.

Þá eru góðar líkur á að líkaminn sé ekki í standi til að nýta öll innihaldsefni eða tegundir innihaldsefna og þá er gríðarlega mikilvægt að þau séu á formum sem eru lífaðgengileg og frásoganleg og tekið sé tillit til umhverfis og erfða.

Meiri upplýsingar
Keto Brainz Nootropic Creamer|Fyrir skýra hugsun og einbeitingu

Keto Brainz Nootropic Creamer|Fyrir skýra hugsun og einbeitingu

8.990 kr