FRAMLEIÐANDI: Seeking Health
Acetyl-L-Carnitine er talið hjálpa líkamanum að búa til orku og hentar vel til þess að hafa stöðuga orku yfir daginn. Það hentar einnig vel fyrir föstur og ketó mataræði, þar em mörgum finnst þeir verða saddir lengur.
Acetyl-L-Carnitine er talið mikilvægt fyrir hjarta-, heila-, og vöðvavirkni. Algengt er að fæðubótarefnið sé tekið til að skerpa minni og heilavirkni, einnig við þreytu, sérstaklega hjá þeim sem eru eldri.
Margir taka það einnig til að sporna við eða minnka vöðvaþreytu eftir æfingar. Einnig er talið að það geti haft jákvæð áhrif á einkenni tengdum lækkuðum testósterón hormónum í körlum sem lækka gjarnan með aldrinum. [1]